
Sundur og Saman (Þórhildur Magnúsdóttir)
Explore every episode of Sundur og Saman
Pub. Date | Title | Duration | |
---|---|---|---|
01 May 2024 | #1 Hvernig set ég mig í fyrsta sæti? | 00:27:38 | |
Loksins er hlaðvarp Sundur & Saman komið út! Hér svara ég spurningunni "Hvernig set ég sjálfa mig í fyrsta sæti?" Ef þú ert með spurningu eftir þáttinn, vilt vita meira um námskeiðin eða markþjálfunina sendu á mig línu. Þú finnur mig á instagram: https://www.instagram.com/sundurogsaman/ Vefsíðan mín er: https://sundurogsaman.is | |||
23 May 2024 | #4 Að þora að vera sexy, án þess að þurfa þess! | 00:35:53 | |
Pælirðu stundum mikið í því hvort þú einhver klæðaburður sé of sexy? Eða hvort að einlægi áhugi þinn á manneskju sé óviðeigandi? Eða hvort einhver haldi að þú sért að reyna við sig þegar þú ert það ekki? Í þessum þætti fjalla ég um hvaða þættir stuðla að því að þú getir verið sexy - án þess að þurfa þess. Ég efast ekki um að eitthvað af þessu muni koma þér á óvart. Láttu mig vita hvað þú uppgötvaðir í komment eða í skilaboðum á instagram. Frítt tjáningaform - Tjáðu þig um það sem skiptir máli, en slepptu restinni! | |||
07 Jul 2024 | #9 What makes good sex? Marcel & Þórhildur | 01:26:53 | |
What makes good sex? In this episode Marcel and I sit down again to talk about sex. We aim to answer the main question “what makes good sex" and also "what makes sex good"? Spurningar sem við svörum í viðtalinu: Hvað gerir kynlíf gott? Hvernig er kynlíf mismunandi með mismunandi mökum? Er hægt að læra að finnast gott að láta sleikja sig? Hversu oft er eðlilegt? Pressa frá maka? Hvað með kynsjúkdóma þegar það eru fleiri makar? Látið mig vita hvað ykkur fannst við hlustunina í gegnum instagram: | |||
09 May 2024 | #2 Marcel - viðtal við kærastann minn um frelsi, gildi og vöxt í samböndum. | 01:05:54 | |
Í þessum þætti fáið þið viðtal við Marcel kærastann minn. Bæði höfum við fetað ótroðnar leiðir í að skapa samböndin okkar innan polyamory og hér ræðum við vítt og breitt um það helsta sem hefur mótað breytingar og vöxt okkar í samböndum. Athugið að viðtalið er á ensku. Njótið vel! | |||
02 Aug 2024 | #11 Þetta verður miklu betra en þú getur ímyndað þér! | 00:17:57 | |
Jey! Ein uppáhalds mantran mín undanfarin ár fær loksins heilan þátt! Vá hvað ég er spennt að þið fáið að hlusta á þessa litlu hjálplegu speki. | |||
16 May 2024 | #3 Af hverju samband er ekki nóg? Ekki ætlast til að ein manneskja gefi það sem heilt þorp á að veita. | 00:34:12 | |
Ef þú hefur áhyggjur af því að makinn þinn hafi ekki sömu áhugamál og þú, hlustaðu á þennan. Í þættinum fjalla ég um mismunandi félagslegar þarfir sem við höfum og hvernig við verðum að fá þeim uppfyllt úr mörgum ólíkum áttum. Lestu um Fullvalda kvennaretreatið (sem þú getur komið á) hér: https://sundurogsaman.me/fullvaldaretreat Njótið vel, hlakka til að heyra frá ykkur á instagram: https://www.instagram.com/sundurogsaman/
| |||
20 Jun 2024 | #8 "Sælla er að gefa en þiggja." Ást fer ekki alltaf jafnt í báðar áttir. | 00:31:57 | |
"Love isn't always a two way street" Hefurðu verið í þeirri stöðu að hafa meiri ást að gefa en maki getur tekið við? Og fundið jafnvel að maki hafi ekki nógu mikla ást að gefa fyrir þig? Í þessum þætti fer ég djúpt ofan í hvernig hjarta okkar getur haldið mismikilli ást, hvernig það getur vaxið og hversu eðlilegt það er að við séum ekki alltaf jöfn í getu og fólkið í kringum okkur. Fyrir öll ykkar sem viljið getað elskað meira, þetta er þáttur fyrir ykkur.
| |||
05 Jun 2024 | #6 Hulda - Hættu að lifa lífinu fyrir aðra! Uppgötvaðu virðið þitt | 01:10:45 | |
Er álit annarra að halda aftur af þér og koma í veg fyrir að þú takir ákvörðun fyrir þig? Hlustaðu á þennan þátt. Í þessum þætti fæ ég til mín Huldu Margréti Brynjarsdóttur, nána vinkonu, einkaþjálfara, yogakennara, móðir og margt fleira. Fylgið Huldu á instagram: @leid.ad.uppeldi Sendið mér skilaboð á instagram @sundurogsaman: | |||
31 May 2024 | #5 Hanna Lilja - Kynlöngun, hormón og kvenheilsa. Hlustaðu á líkamann svo þú getir notið þín betur. | 01:22:16 | |
Í þessum þætti Sundur & Saman spjallaði Þórhildur við Hönnu Lilju, stofnanda GynaMedica um allt sem við kemur heilsu kvenna. Kynlöngun, kynheilsu, hormónahringinn, breytingaskeiðið, barneignir og kynsjúkdóma. Hvernig það er að vera kona, líðan kvenna og líðan í sambandi, upplifun af kynlífi og samfélagslega skekkju hvað varðar sambönd og kynlöngun í kringum barneignir og hvernig hormónar geta útskýrt margt af þessu. Njótið þess að hlusta! Meira um GynaMedica: https://www.instagram.com/gynamedica
Sundur og Saman á instagram: https://www.instagram.com/sundurogsaman Fullvalda Retreat 23. júní 2024: | |||
21 Jul 2024 | #10 Kjartan: "Ég myndi ekki fara tilbaka í lokað samband" | 01:05:29 | |
Daginn eftir 11 ára brúðkaupsafmælið okkar settumst við niður og tókum upp þátt. Við förum yfir alla sambandssöguna okkar, hvað hefur breyst síðan við opnuðum sambandið og hvað kom okkur á óvart. Hvernig tökumst við á við afbrýðissemi? Er lokað samband kannski aðeins falskt öryggi? Vonandi svalar þetta hluta af forvitni ykkar um opin sambönd og gerir ykkur spennt að víkka sjóndeildarhringinn ykkar.
| |||
13 Jun 2024 | #7 Eru þægindin að kæfa þig? Hvað gerist þegar þú stígur út fyrir þægindarammann? | 00:34:58 | |
Hvað gerir þú þegar þú veist þú þarft að fara út fyrir þægindarammann? Drífir þú þig í því? Eða frestarðu því aftur og aftur af því að lífið er bara "of þægilegt" svona. Á endanum nær innsæið til þín og þægindin verða kæfandi! Í þessum þætti tala ég um hvað gerist þegar þú stígur út fyrir þægindarammann og hvaða vísbendingar segja þér að það sé kominn tími til. Fyrir konur sem vilja taka stökk með mér út fyrir þægindarammann á Spáni í lok júní - lesið meira hér Fullvalda retreat eða sendið mér skilaboð á instagram. Ert þú með spurningu eða ósk um umræðuefni fyrir þáttinn? Sendu mér línu! |